04. nóv. 2009
Tvær nýjar skáldsögur
Út er komin ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson, Fuglalíf á Framnesvegi og er hún sjálfstætt framhald Flugu á vegg sem kom út í fyrra. Hér heldur ... [meira]

04. nóv. 2009
Flosi er á fleygiferð
Bók Flosa heitins Ólafssonar, Í Kvosinni, situr nú í öðru sæti í flokki ævisagna og í sjöunda sæti yfir allar seldar bækur í Eymundsson. Það þarf í ... [meira]

Skip Navigation Links
Félagsfræði menntunar

Verð kr. 3990,-
Panta með tölvupósti


Eitt merkasta verkefni félagsfræðinnar er að leiða í ljós hvernig samfélagið mótar uppvöxt nýrra samfélagsþegna og hvernig nám er félagsleg athöfn og þáttur í mótun samfélagsins. Í þessari bók eru helstu félagsfræðikenningar um uppeldi og menntun kynntar á gagnrýninn hátt og megindrættir í þróun félagsfræði menntunar raktir í sögulegu samhengi. Grundvallarhugtök eru skýrð, greint frá rannsóknum þar sem þeim er beitt og ljósi varpað á ýmis lykilatriði í samfélagslegu samhengi menntunar í ýmsum löndum. Fjölmörg dæmi eru gefin um beitingu félagsfræðilegra kenninga við álitamál og spurningar um þróun menntunar, og taka flest dæmin mið af íslenskum aðstæðum.
220 bls. | 150 x 230 mm | 2009 | ISBN 978-9979-655-43-5
Skrudda hefur gefið út þó nokkrar bækur um sálfræði og önnur félagsvísindi undanfarin ár. Skoðið úrvalið hér. [meira]