04. nóv. 2009
Tvær nýjar skáldsögur
Út er komin ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson, Fuglalíf á Framnesvegi og er hún sjálfstætt framhald Flugu á vegg sem kom út í fyrra. Hér heldur ... [meira]

04. nóv. 2009
Flosi er á fleygiferð
Bók Flosa heitins Ólafssonar, Í Kvosinni, situr nú í öðru sæti í flokki ævisagna og í sjöunda sæti yfir allar seldar bækur í Eymundsson. Það þarf í ... [meira]

Skip Navigation Links
Það liggur í loftinu
Saga Birnu Óladóttur og Dagbjarts Einarssonar í Grindavík

Verð kr. 4990,-
Panta með tölvupósti


Birna Óladóttir og Dagbjartur Einarsson útgerðarmaður í Grindavík eru löngu þjóðþekkt fólk. Þau stóðu í áratugi fyrir kraftmikilli útgerð í Grindavík og Dagbjartur var lengi formaður SÍF. Í þessari bók rekur Jónas Jónasson sögu þeirra. Bókin er opinská enda eru Birna og Dagbjartur hrein og bein og óhrædd við að segja frá viðkvæmum einkamálum sínum. En bókin er ekki síður saga dugmikils fólks sem með áræðni og vinnusemi byggði upp öflugt fyrirtæki og getur með stolti litið yfir farinn veg.
235 bls. | 135 x 210 | 2009 | ISBN 978-9979-655-58-9
Skrudda hefur gefið út fjölmargar ævisögur og endurminningar. Skoðið nánar hér. [meira]