04. nóv. 2009
Tvær nýjar skáldsögur
Út er komin ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson, Fuglalíf á Framnesvegi og er hún sjálfstætt framhald Flugu á vegg sem kom út í fyrra. Hér heldur ... [meira]

04. nóv. 2009
Flosi er á fleygiferð
Bók Flosa heitins Ólafssonar, Í Kvosinni, situr nú í öðru sæti í flokki ævisagna og í sjöunda sæti yfir allar seldar bækur í Eymundsson. Það þarf í ... [meira]

Skip Navigation LinksBækur > Handbækur > Fjallaskálar á Íslandi
Fjallaskálar á Íslandi

Verð kr. 4990,-
Panta með tölvupósti


Í þessari bók er í máli og myndum lýst hartnær 400 skálum, gömlum og nýjum, sem reistir hafa verið víðs vegar á Íslandi. Bókin hefur að geyma ómældan fróðleik um skálana, sögu þeirra og búnað, auk þess sem getið  er eigenda og umsjónarmanna. Ljósmynd er af öllum skálunum og staðsetning þeirra mörkuð með GPS-punkti og á landakorti. Greinargóðar leiðarlýsingar eru að skálunum og víða er sagt frá náttúruperlum í nágrenni þeirra. Í sér kafla aftast í bókinni er fjallað um ýmsa gamla og sögulega fjallaskála sem sumir hverjir þjóna enn ferðamönnum í óbyggðunum. Hér er á ferðinni einkar gagnlegahandbók fyrir alla þá sem ferðast um fjöll og firnindi,  jafnt göngugörpum sem hestamönnum og ökuþórum.
380 bls. | 210 x 130 mm | 2010 | ISBN 978-9979-655-67-1
Skrudda hefur gefið út margs kyns vandaðar handbækur um ólíkustu efni. Skoðið nánar hér. [meira]
Skrudda hefur frá stofnun gefið út vandaðar fræðibækur í glæsilegum útgáfum. Úrvalið má skoða hér. [meira]