04. nóv. 2009
Tvær nýjar skáldsögur
Út er komin ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson, Fuglalíf á Framnesvegi og er hún sjálfstætt framhald Flugu á vegg sem kom út í fyrra. Hér heldur ... [meira]

04. nóv. 2009
Flosi er á fleygiferð
Bók Flosa heitins Ólafssonar, Í Kvosinni, situr nú í öðru sæti í flokki ævisagna og í sjöunda sæti yfir allar seldar bækur í Eymundsson. Það þarf í ... [meira]

Skip Navigation Links
Uppeldisbókin
Að byggja upp færni til framtíðar

Verð kr. 2.990,-
Panta með tölvupósti


Að vera foreldri er sennilegasta mikilvægasta verkefnið sem flest okkar takast á við. Uppeldi snýst alls ekki eingöngu um það að ala upp prúð börn sem gengur vel í skóla, heldur einnig að leitast við að laða fram og styrkja eiginleika sem stuðla að persónulegri velgengni og farsælum samskiptum við aðra. Í Uppeldisbókinni lýsa höfundar því hvernig börn læra frá unga aldri athafnir og framkomu með því að fylgja því fordæmi og skilaboðum sem foreldrar og aðrir í umhverfi þeirra gefa þeim. Efninu er skipt í aðgengilega kafla þar sem gefin eru gagnleg ráð, árangursríkum aðferðum er lýst og bent er á hvaða færni foreldrar þurfi að búa yfir eða tileinka sér til að hvetja til æskilegrar hegðunar barna sinna.

Bókin er notuð á námskeiðum fyrir foreldra ungra barna sem haldin hafa verið á heilsugæslustöðvum og leikskólum frá árinu 2004.
328 bls. | 135 x 210 mm | 2004 | ISBN 9979-772-33-6
Skrudda hefur gefið út margs kyns vandaðar handbækur um ólíkustu efni. Skoðið nánar hér. [meira]
Skrudda hefur gefið út þó nokkrar bækur um sálfræði og önnur félagsvísindi undanfarin ár. Skoðið úrvalið hér. [meira]