04. nóv. 2009
Tvær nýjar skáldsögur
Út er komin ný bók eftir Ólaf Hauk Símonarson, Fuglalíf á Framnesvegi og er hún sjálfstætt framhald Flugu á vegg sem kom út í fyrra. Hér heldur ... [meira]

04. nóv. 2009
Flosi er á fleygiferð
Bók Flosa heitins Ólafssonar, Í Kvosinni, situr nú í öðru sæti í flokki ævisagna og í sjöunda sæti yfir allar seldar bækur í Eymundsson. Það þarf í ... [meira]

Í ánauð

Verð kr. 4.017,-
Tilboðsverð kr. 1.990,-



Ólöglegur innflytjandi finnst myrtur í félagsíbúðahverfi í Edinborg. Rebus dregst inn í málið. Við rannsókn málsins þarf hann að heimsækja fangelsi þar sem hælisleitendur eru hafðir í haldi, kljást við miður geðslega menn í undirheimum Edinborgar og svo grípur ástin hann jafnvel ... Siobhan er líka að glíma við vandamál. Hún kemst í meira návígi við dæmdan nauðgara en hollt er. Svo eru það beinagrindurnar tvær – kona og kornabarn – sem fundust grafnar undir steyptu kjallaragólfi í Fleshmarket Close. Hvernig tengist það morði í vægðarlausu félagsíbúðahverfi sem kallast Knoxland. Í þessari bók er kannað hvaða áhrif það hefur þegar sameiginlegur menningararfur hverfur fyrir ógeðfelldari eðlisþáttum mannsins: græðgi, vantrausti, ofbeldi og misnotkun. Enn einn snilldarkrimminn frá Ian Rankin.
383 bls. | 230 x 149 mm | 2005 | ISBN 9979-772-50-6
Bækurnar og sjónvarps- þættirnir um Rebus hafa slegið í gegn um allan heim. Skrudda hefur nú gefið út fimm spennuþrungna krimma um Rebus. [meira]