Landnám og landnámsfólk
Saga af bæ og blóti
Verð kr. 9999,-
Í þessari bók fjallar Dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur um landnám Íslands, forsendur þess og aðdraganda. Í brennidepli er landnámsbýlið
Hólmur í Nesjum sem rannsakað var árin 1997–2011, en þar voru rannsakaðar minjar um bæ og blót. Sögusviðið nær langt út fyrir landsteinana, allt frá Nýfundnalandi í vestri að Bulgar í Austri, frá Afríku í suðri og Svalbarða í norðri.
Í bókinni birtast á fjórða hundrað ljósmyndir, teikningar, uppdrættir og kort sem tengjast rannsóknunum.
477 bls.
| 185x240
| 2015
| ISBN 978-9935-458-31-5