Heilsuverndarstöð Reykjavíkur 1953-2006
Yfirlit yfir sögu og starfsemi
Verð kr. 5990,-
Í þessari bók rekur Bergljót Líndal fyrrum hjúkrunarforstjóri Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur sögu þessarar stofnunar frá upphafi 1953 þar til starfsemi í húsinu við Barónstíg var lögð niður árið 2006. Jafnframt fjallar hún stuttlega um heilsuvernd á fyrri öldum og í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar.
Meginefni bókarinnar er þó starfsemi hinna ýmsu deilda Heilsuverndarstöðvarinnar en þær voru voru fjölmargar og sinntu öllum helstu þáttum í heilsuvernd Reykvíkinga í meira en hálfa öld. Ekki síst er mikil áhersla lögð á starfsemi barnadeildar og mæðradeildar Heilsuverndarstöðvarinnar. Loks er fjallað ítarlega um fólkið sem starfaði á Heilsuverndarstöðinni öll þessi ár og í bókarlok er skrá yfir forstöðumenn deilda,
auk atriðis- og nafnaskrár.
234 bls.
| 153 x 230
| 2016
| ISBN 978-9935458-42-1