Maður nýrra tíma
Æviminningar Guðmundar H. Garðarssonar
Verð kr. 6990,-
Guðmundur H. Garðarsson er maður nýrra tíma. Hann er afkvæmi þeirra miklu samfélagsbreytinga sem urðu við hernám
Íslands og gerðist frumkvöðull á mörgum sviðum. Hann kynnti
sér kornungur lífeyrismál í Bretlandi og barðist fyrir umbótum
á því sviði hérlendis. Hann var um árabil einn helsti talsmaður
vestrænnar samvinnu hér á landi. Guðmundur starfaði hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í næstum fjóra áratugi og var formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur í 23 ár. Hann var um
tíma einn af helstu forystumönnum Alþýðusambandsins, var
alþingismaður um árabil, fulltrúi í samninganefnd um útfærslu
fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur og flutti fyrstur manna frumvarp til laga á Alþingi um frelsi í fjölmiðlarekstri.
Höfundur bókarinnar er Björn Jón Bragason, lögfræðingur
og sagnfræðingur. Hann leggur stund á doktorsnám.
Eftir hann liggja þrjú sagnfræðirit og þá hefur hann ritað
fjölda fræðigreina.
292 bls.
| 150 x 230
| 2017
| ISBN 978-9935-458-71-1