Landbúnaðarsaga Íslands 1-4
Verð kr. 29990,-
Í þessu mikla verki er rakin saga landbúnaðar á Íslandi frá landnámi til okkar daga. Verkið skiptist í fjögur bindi. Fyrsta bindið rekur þróun landbúnaðar frá upphafi byggðar fram til 1800. Í öðru bindi er fjallað um bændasamfélagið á 19. og 20. öld og þær miklu breytingar sem orðið hafa á þessu tímabili.
Þriðja og fjórða bindi fjalla um búgreinarnar. Í þriðja bindi er sauðfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt til umfjöllunar og í fjórða bindi er fjallað um aðrar greinar landbúnaðarins, jarðrækt, garðrækt, skógrækt, fiskeldi og veiði í ám og vötnum, svína- og alifuglarækt, og loks loðdýrarækt.
1357 bls.
| 4 bindi
| 290
| 2013
| ISBN 9789935458001