Fjallakúnstner segir frá (3. útg.)
Verð kr. 3999,-
Maður við aldur, en þó kvikur í hreyfingum, gengur um bæinn
með sendilshjól í gömlum stíl sér við hlið. Ekki er óalgengt að orfi
og hrífu sé haganlega komið fyrir á hjólinu. Hér fer bóndi, að vísu ekki sá eini í Reykjavík en að ýmsu leyti sá sérstæðasti, þó ekki
væri nema fyrir það að enga á hann spilduna. Ein tugga slegin
hér, önnur þar. Þó fá hrossin sitt.
En þessi maður er ekki aðeins malarbóndi. Hann er jafnframt
listmálari án sálufélags við aðra slíka. Stefán heitir sá sem
um er rætt, jafnan kenndur við Möðrudal á Fjöllum.
Fjallakúnstnerinn Stefán frá Möðrudal – rótlaust lífstré kynborins
sonar íslenskra öræfa hefur víða farið og fæstir hafa gert sér grein fyrir kjöviði undir hrjúfum berkinum. Listsköpun Stefáns ber svip hrikalegrar náttúru Möðrudalsöræfa, oft í tröllslíki.
Hér birtist á nýjan leik samtalsbók Pjeturs Hafstein Lárussonar við Stefán frá Möðrudal, einn merkasta fulltrúa íslenskrar alþýðumenningar á síðustu öld.
143 bls.
| 122 x 200
| 2020
| ISBN 978-9935-458-98-8