Bjargvætturinn í grasinu (kilja)
Verð kr. 1.780,-
Holden Caulfield er rekinn úr skólanum enn einu sinni og fer til New York skömmu áður en önninni lýkur. Þar þarf hann að horfast í augu við foreldra sína, en fyrst ætlar hann að sletta úr klaufunum í nokkra daga.
Bjargvætturinn í grasinu er eitt af tímamótaverkum í skáldsagnagerð 20. aldarinnar. Sagan vakti miklar deilur þegar hún kom út og var um tíma bönnuð í Bandaríkjunum. Bókin kom fyrst út á íslensku árið 1975 í þýðingu Flosa Ólafssonar.
240 bls.
| 122 x 195 mm
| 2007
| ISBN 978-9979-772-42-2